Tíðindi

Iceland Express eykur afþreyingarúrvalið

  24/11/2010september 29th, 2014No Comments

Fyrir 1.500 krónur geta farþegar Iceland Express nú leigt sér iPad á flugleiðum félagsins en þetta mun vera í fyrsta sinn sem boðið er upp á slíkt.

iPad fyrir þá sem ekki þekkja er í raun spjaldtölva og þar má spila leiki, hlusta á útvarp, fletta bókum og dagblöðum og horfa á útvalda þætti og kvikmyndir.

Er því í raun um heilt afþreyingarkerfi að ræða en ólíkt keppinautnum Icelandair hafa afþreyingarkerfi í vélum Iceland Express ekki þótt merkileg hingað til. iPad búnaðurinn breytir því verulega til batnaðar.