Bandarísk flugmálayfirvöld hafa nú sett upp nýja gerð líkamsskanna á nokkrum stærri flugvöllum landsins en þeim er ætlað að bregðast við mikilli óánægju farþega með hefðbundna líkamsskanna þar sem allur líkaminn er sýnilegur öryggisvörðum.
Nýju skannarnir eru eins nema að því leyti að ekki er lengur hægt að sjá allra heilögustu líkamsparta fólks því hugbúnaður í skönnunum les aðeins hvort undarlegar fellur eða bungur finnast án þess að sýna á mynd kynfæri fólks.
Takist verkefnið vel verður öllum skönnum í Bandaríkjunum breytt á þennan hátt.






