Tíðindi

Kína vinsælli áfangastaður en Spánn

  08/02/2011nóvember 22nd, 2014No Comments

Kína hefur nú opinberlega sparkað Spáni úr þriðja sætinu sem vinsælasta ferðamannland í veröldinni. Eiga kínversk ferðamálayfirvöld þó töluvert enn í Frakkland og Bandaríkin sem eru vinsælust.

Kemur þetta fáum á óvart en í kjölfar mikilla fjárfestinga kringum Ólympíuleikanna í Peking 2008 eyddu yfirvöld miklum fjárhæðum að auki til að freista ferðamanna hvarvetna í veröldinni. Hefur það sannarlega gengið eftir en spár Sameinuðu þjóðanna gera ráð fyrir að Kína verði að fáum árum liðnum komið á toppinn sem vinsælasta ferðamannaland heims.