Tíðindi

Líkamsskannar sagðir gagnslausir

  09/08/2011desember 5th, 2014No Comments

Eftir tíu mánaða reynslutíma þýskra löggæslumanna á líkamsskönnum á flugvellinum í Hamborg er niðurstaðan loks orðin ljós. Þeir eru gagnslausir.

Þessum merku tíðindum greinir fréttaveitan AFP frá og vísar í fregn þýska vikuritsins Welt am Sonntag en prófanir á líkamsskönnum hófust í kjölfar þess að Bandaríkin óskuðu þess að settir yrðu upp sams konar líkamsskannar í Evrópu og eru til staðar í Bandaríkjunum. Það vildi ESB ekki gera án þess að kanna fyrst áhrif þeirra og gagn og ef taka á mið af þýsku lögreglunni eru þeir því sem næst gagnslausir.

Það eru þeir vegna þess tilraunin sýndi að þeir pípa ítrekað að ástæðulausu og sýna tölurnar frá Hamborg að skannarnir vara við einhverju að óþörfu í sjöunda hvert skipti af tíu. Gáfu þeir aðvaranir væri fólk í of miklum fatnaði, stígvélum, rennilásar komust oft ekki í gegn og af og til píptu skannarnir eingöngu vegna líkamsstöðu fólks við skönnun.

Fá því líkamsskannar þeir er Bandaríkjamenn eru svo hrifnir af og telja ómissandi í baráttunni við hryðjuverkamenn falleinkunn þýskra og verða því ekki settir upp að svo stöddu í Þýskalandi.