Ekkert fer meira í taugarnar á okkur ferðafólki en léleg þjónusta á hótelum og gististöðum. Það finnst okkur mun verra en gista í skítugu herbergi eða fá vondan mat.

Þegar öllu er á botninn hvolft skiptir þjónusta meginmáli þegar dvalið er erlendis.
Það allavega eru niðurstöður ráðgjafafyrirtækisins TrustYou sem hefur tekið saman helstu kvartanir fólks á hótelvefum á borð við Virtualtourist.com og Tripadvisor.com.
Fór fyrirtækið grannt yfir rúma milljón kvartana á þeim vefum og í ljós kemur að viðvaningsleg þjónusta og eða seinleg þjónusta starfsfólks á gististöðum er langstærsta ástæða kvartana.
Kannski ætti þetta að verða uppvakning fyrir alla þá hóteleigendur sem greiða lágmarkslaun og koma illa fram við starfsfólkið því fúlt staff sem lítinn áhuga hefur á vinnu sinni er vitaskuld líklegra til að valda óánægju hjá viðskiptavinum. Það er ekki hægt að feika gleði í starfi nema stutta stund. Nú hefur það líka kostnað í för með sér að koma illa fram við starfsfólk þegar meginhluti ferðafólks velur sér áfangastaði eftir umsögnum á netinu.
Hér að neðan eru nokkrir þeir hlutir sem ferðafólk kvartar mest yfir vegna gististaða samkvæmt úttekt TrustYou.
♦ Kunnáttuleysi / þjónustuskortur hjá starfsfólki
♦ Lítið herbergi
♦ Kostnaður / Of dýrt
♦ Bragðlaus eða bragðdaufur morgunverður
♦ Vondur matur
♦ Skítugt herbergi
♦ Dónaskapur í starfsfólki
♦ Ljót baðherbergi
♦ Bið eftir þjónustu
♦ Hávaði í herbergi
♦ Slæmt rúm
♦ Lítil baðherbergi
♦ Staðsetning herbergis
♦ Ekkert eða lélegt netsamband







