Tíðindi

Leifsstöð rýmd vegna elds

  18/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Eldur varð laus í Leifsstöð fyrir stundu og er starfsemi á vellinum í lamasessi eins og sakir standa vegna þess. Berst slökkvilið við eldinn en töluverður reykur er í biðsal flugvallarins. Hefur flugstöðin verið rýmd.

Samkvæmt Víkurfréttum kviknaði eldurinn við veitingastaðinn Nord í biðsal flugstöðvarinnar en orsakir eru ókunnar að svo stöddu.

Ekki hefur neinum brottförum verið frestað vegna þessa sé mið tekið af vef Leifsstöðvar en næsta brottför er þó ekki fyrr en um kl. 16 í dag.

Talsmaður Isavia segir að verið sé að reykræsta tvær hæðir í flugstöðinni en eldinn má að líkindum rekja til rafmagns. Ekki er búist við töfum vegna þessa en lyktin innifyrir mun ekki vera sérstaklega unaðsleg.

Vefur Leifsstöðvar hér.