Að mati framkvæmdastjóra Icelandair þarf að stækka Leifsstöð til muna frá því sem nú er til að halda í við áætlaða fjölgun ferðamanna hingað til lands. Gera spár ráð fyrir auknum fjölda næstu árin og bjartsýnustu spár gera ráð fyrir einni milljón ferðamanna innan tíu til fimmtán ára.
Segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, að ríkið þurfi að taka til hendinni áður en illa fer. Bæta þurfi aðstöðu alla og fjölga landgöngum.
Hluti ástæðu vaxandi vinsælda Íslands er mikil fjölgun flugfélaga sem hingað hefja áætlunarflug en strax með vorinu fljúga hingað reglulega ein níu flugfélög þó þeim fækki á ný í haust.
Verður þó ekki af stjórnvöldum tekið að lítt er litið til framtíðar við byggingu slíkra mannvirkja. Hefur Leifsstöð þrívegis verið stækkuð síðan hún opnaði árið 1987 og það síðast upp úr aldamótum. Auk þess hefur biðsal og öryggisgæslusvæði verið ítrekað breytt.






