Hótelvefurinn, hótelbókanir.is, auglýsir þjónustu sína villt og galið víða hérlendis en eins og Fararheill hefur greint frá eru þar að baki Íslendingar í Kaupmannahöfn.

Hvers vegna aðili úti í Danmörku ákveður að bjóða sömu vöru og minnst fjórir aðrir aðilar hérlendis eru þegar að bjóða er merkilegur andskoti. Skjáskot
Þetta er æði merkilegur vefur því hann gerir ekkert annað en vísa beint á vef Booking.com. Sem sagt býður nákvæmlega sömu þjónustu og Icelandair, Wow Air og Dohop sem einnig bjóða þér að bóka gistingu á Booking.com.
Verra þó fyrir viðskiptavini þessara að þar fær fólk ekkert endilega lægsta verð á gistingu nema síður sé. Það nægir fólki að kíkja á bókunarvef Fararheill til að komast að raun um það.
En ekki taka okkar orð fyrir. Hér að neðan má sjá nokkrar stikkprufur til samanburðar. Það er jú tóm steypa að borga of mikið fyrir gistingu.







