„L Lítill starfsmannakostnaður er ekki tilkominn vegna lægri launa, heldur er dregið úr starfskjörum miðað við önnur flugfélög með öðrum hætti.”

????

Newspeak Orwells nær nýjum hæðum á Íslandinu góða sjötíu árum eftir dauða hins ágæta rithöfundar. Eða hvernig er það ekki launalækkun að snarfjölga vinnustundum, hætta að niðurgreiða ferðir til og frá flugvelli, skerða árlega frídaga um 25 prósent en samt greiða lægri laun en helstu keppinautar?

Sem er nákvæmlega það sem forráðamenn Play hugsa sér samkvæmt útboðslýsingu sem nú hefur verið gerð opinber en Play vill negla fjóra milljarða króna frá fjárfestum á næstu dögum til að að eiga fyrir hlutunum næstu misserin.

Sorglegt. Skúli Mogensen þurfti ekkert að beygja og fiffa lög og reglur þegar hann kom Wow Air á laggirnir á sínum tíma. Fólk finnur ekki eina frétt þess efnis að Wow Air ætlaði eitthvað annað en greiða sanngjörn og góð laun í takt við lög landsins þegar það flugfélag var í startholunum. Og það voru ekki há laun sem komu Wow fyrir kattarnef.

En forsvarsmenn Play ætla að greiða töluvert lægri laun, heimta fleiri vinnustundir, bjóða minna frí og staffið verður sjálft að koma sér til og frá vinnu á flugvöllum heimsins. Það í ofanálag við að bjóða viðskiptavinum minnsta fótapláss í flugheimum og leigja sparneytnar rellur á 25% afslætti frá því sem normið er.

Sorrí Stína og Jói en þetta kallast bullandi græðgi. Grægði sem á samkvæmt útboðslýsingu að skila Play ágætum hagnaði strax á næsta ári og fimm milljörðum króna í plús eftir fjögur ár.

Gott og blessað. Hagnaður er jú ástæða þess að fara í bissness en það er dapurt mjög þegar sá hagnaður er að detta inn á kostnað starfsfólks.

Herra Mogensen gat rekið flugfélag án þess að steingelda allt staffið sitt í mörg ár. Hvers vegna ætti Play ekki að geta það sama við mun betri rekstrarskilyrði?