S ólin ber þig niður linnulaust og hvergi skjól. Þrjátíu og sex gráður yfir hádaginn og um eða uppúr 20 gráður að næturlagi. Velkomin í frumskóg Kongó til Þýskalands.

Allt eðlilegt við þetta (ekki.) Skjáskot þýska veðurstofan

Finnum okkur tilknúin að vara ferðalanga á leið til Þýskalands við veðrinu þar um slóðir næstu dægrin. Ekki vondu veðri heldur súperheitu veðri. Hitabylgju nánar tiltekið.

Eins dásamlegar og Berlín, Köln eða Munchen eru á venjulegum góðviðrisdegi er ekkert mikið varið í að dvelja í slíkum steinsteypufrumskógi þegar hitastigið skjagar langleiðina í 40 gráðurnar.

Það sami hiti og í velflestum heitapottum sundlauganna og fáir ílengjast þar klukkustundum saman án þess að stikna hægt og sígandi.

Varlega þarna úti 😉