Skip to main content
Tíðindi

Lágfargjaldaflugfélag með fulla þjónustu

  20/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Það er ekki á hverjum degi sem risaflugfélag segir hingað og ekki lengra og tekur til vopna gegn lágfargjaldaflugfélögum. Það hefur hins vegar gerst í Frakklandi þar sem Air France hefur tilkynnt um hvorki meira né minna en 56 nýja áfangastaði frá smærri flugvöllum.

Hyggst flugrisinn franski þannig ná til baka fjórum milljónum farþega sem nú fljúga með þeim fjölmörgu lágfargjaldafélögum sem fljúga til og frá Frakklandi.

Það sem meira er; til að næla í þá farþega sem ekki eru sannfærðir um kosti þess að fljúga með Air France hyggst flugfélagið bjóða sömu lágu fargjöldin og önnur lágfargjaldaflugfélög en með fullri þjónustu á borð við þá sem býðst hjá hefðbundnum stærri og dýrari flugfélögum.

Fá þannig farþegar sem punga út átta þúsund kalli fyrir túr aðra leið frá Marseille til Tangier svo dæmi sé tekið frían mat í ferðinni, frítt úrval dagblaða, flugpunkta og geta valið sér sæti.

Það verður flugvöllurinn í Marseille á suðurströnd landsins sem verður miðpunktur starfsemi þessarar hjá Air France en þaðan verður hægt að fljúga fyrir 50 evrur plús skatta til evrópskra borga á borð við Mílanó, Aþenu, Kaupmannahafnar, Prag, og Dusseldorf og eins fara lengri ferðir til Moskvu, Beirút og Istanbúl.

Geta íslenskir ferðalangar aðeins látið sig dreyma um hvenær fljúga má til landa á borð við þessa á rúmlega tíu þúsund krónur með sköttum og fengið mat í kaupbæti.