Eins dauði er annars brauð og það á líka við um flugbransann. Sama dag og farþegar Icelandair sitja heima og reyta skegg sitt og hár vegna verkfalls auglýsir lággjaldaflugfélagið easyJet enn lægri fargjöld en ella.
Flugfélagið breska auglýsir nú 140 þúsund sæti í vélum sínum frá 39 pundum, kringum 7.500 krónur, svo lengi sem tveir einstaklingar bóka saman flug og má á vef þeirra finna ferðir á þessu verði til velflestra áfangastaða þó reyndar við finnum ekki svo lág fargjöld til Íslands.
Það út af fyrir sig eðlilegt því Ísland er brennheitur áfangastaður. Engu að síður er auðvelt að finna flug til London og heim aftur undir 20 þúsund krónum svo lengi sem fólk hefur engan farangur meðferðis.








