Hitastigið í líklega skemmtilegustu borg Kanada, Vancouver, hefur þetta sumarið varla farið undir 18 gráður og það jafnvel ekki að næturlagi. Sjósund við flottar strendur borgarinnar hljómar því kjörið fyrir fólk sem ekki þolir mikinn hita. En það eru alvarleg mistök.

Busl í sjávarmálinu við Vancouver í Kanada er töluvert slæm hugmynd.

Ekki ýkja margt sem Reykjavíkurborg hefur gert vel undir stjórn Dags B. Eggertssonar og vina úr Vinstri grænum undanfarin ár. Reyndar ekkert sem við hér munum eftir nema að loka helstu götum fyrir bílaumferð í miðbænum að sumarlagi. Það er til dæmis ekkert eftirlit af hálfu borgarinnar með saurgerlamengun í Nauthólsvík þar sem hundruð borgarbúa skella sér í sjóinn í viku hverri.

Það töluvert á skjön við fagmenn hjá borgaryfirvöldum í Vancouver en þeir láta ekki nægja að mæla sundlaugar með tilliti til mengunar; það gera þeir líka meðfram fallegum ströndum borgarinnar.

Og viti menn! Sjórinn við Vancouver er svo mökkfullur af saurgerlum að borgin varar mjög sterklega við að fólk skelli sér eina bunu í flæðarmálinu. Í ljós kemur að vikulegar mælingar borgaryfirvalda leiða í ljós að hættulegt magn saurgerla, ekólí, finnst við allar strendur borgarinnar.

Ekki hættulegt í merkingunni lífshættulegt heldur frekar að magnið sé nægt til að framkalla töluverð veikindi hjá sjósundsfólki og buslurum. Mikil uppköst, kláði um allan líkamann og mögulega mun alvarlegri veikindi hjá fólki sem er veikt fyrir.

Því miður fyrir heimamenn í Vancover er ekki einu sinni hollt og gott að stinga sér til sunds í nokkrum þeim vötnum sem nálægt eru borginni heldur. Þau líka mökkfull er saurgerlum samkvæmt dagblaðinu Vancouver Sun.

Láttu sturtuna á hótelinu nægja…