Tíðindi

Kreppa hvað…

  22/09/2012No Comments

Ef marka má ákveðinn hóp hér á landi er hér viðvarandi djúp og ægileg kreppa sem engum eirir og stjórnvöld sýna engan lit til aðstoðar.

Icelandair hefur sýnt fínan hagnað að undanförnu og hluti af því er aukin ásókn Íslendinga í utanlandsferðir

Engin merki þeirrar kreppu sjást í tölum kortafyrirtækisins Valitor um eyðslu Íslendinga á erlendri grundu. Þvert á móti er spreðerí landans annars staðar en hér á bullandi uppleið alla mánuði þessa árs og var sömuleiðis á uppleið allt árið í fyrra.

Valitor, umboðsaðili Visa hérlendis, tekur saman og birtir reglulega tölur um notkun Visa korta innanlands og utan og er nákvæmlega engum blöðum um að fletta að landinn er að versla mun meira þetta árið en 2011 og það árið versluðu Íslendingar mun meira en 2010.

Efist einhver um hvað þetta merkir ætti að nægja að minna á að Visa er og hefur verið langvinsælasta kort sem Íslendingar nota. Fullyrða má að erlendis, sérstaklega eftir að Seðlabanki Íslands, takmarkaði gjaldeyriskaup hvers og eins við 350 þúsund krónur, noti Íslendingar því kortin enn meira en áður fyrr.

Þetta gefur líka ýmislegt til kynna um utanlandsferðir Íslendinga og má draga af tölunum ýmsar ályktanir. Svo sem að landinn ferðast minnst erlendis í mars og ágúst en margir flýja í janúar og páskamánuðinn apríl.

Vísitala Valitor frá janúar til ágúst á þessu ári