Marrakesh í Marokkó er merkilegasti áfangastaðurinn í allri Afríku þetta árið að mati samtakanna World Travel Awards, WTA, sem birtu í vikunni niðurstöður sínar hvað ferðalög í Afríku varðar.

Borgin Marrakesh í Marokkó þykir merkilegasti áfangastaðurinn í Afríku og þá sérstaklega verið að vísa til gamla borgarhlutans.
Eru verðlaun þessi Óskarverðlaun ferðageirans en atkvæði greiða tugir þúsunda starfsfólks í geiranum sjálfum um víða veröld. Þykir því meira mark á þessum verðlaunum takandi en mörgum öðrum þó hverjum þykir auðvitað sinn fugl fagrastur.
Verðlaunað er í fjölda flokka en þeir helstu eru:
- Besta flugfélag Afríku er South African Airways
- Besti fjölskylduáfangastaðurinn er Sun City í S.Afríku
- Bestu heilsulindina býður Arabella Hotel í S.Afríku
- Besta strandhótelið er Diamonds La Gemma á eynni Zansibar
- Bestu strendurnar eru í Durban í S.Afríku
- Besti golfáfangastaðurinn er Jolie Ville Golf Resort í Sharm-El-Sheikh í Egyptalandi
Fararheill getur sannarlega mælt með heimsókn til Marrakesh. Hún er merkilega fyrir margra hluta sakir og þangað er komist aðra leiðina frá helstu Evrópulöndum með lágfargjaldaflugfélögum fyrir 15 til 20 þúsund krónum aðra leiðina.
Þá er hræbillegt að borða þar og hótel- eða gistikostnaður ætti ekki að drepa neinn heldur.
Sjá nánar vegvísi Fararheill um Marrakesh.






