Enn eru fjögur sæti laus í sérstaka kvennaferð Úrval Útsýn til Indlands í janúar og auglýsir ferðaskrifstofan nú síðustu sætin grimmt. Ástæða þess er líklega sú að lágmarksþáttöku hefur ekki verið náð en ferðin verður blásin af ef ekki næst í tíu manna hóp.
Um er að ræða allforvitnilega ferð til smábæjarins Kochi, Cochin, á suðvesturströnd landsins í Kerala héraði og er fullskipuð dagskrá alla dagana.
Ekki er flugið þó sérstaklega skemmtilegt því millilent er tvívegis bæði fram og til baka í London og Abu Dhabi. Engu að síður er verðmiðinn hár því hver einstaklingur greiðir sem nemur 355.900 krónum fyrir herlegheitin. Það er gróflega reiknað 33 þúsund krónur hver einasti dagur.
Heimasíða ÚÚ hér.






