Bæði í Færeyjum og á Grænlandi heyrast nú köll um að stjórnvöld eigi að takmarka allt flug til og frá löndunum tveimur duglega til að sporna gegn kórónafaraldrinum. Í báðum löndum eru sýktir einstaklingar sem komu flugleiðis frá Danmörku.

Hinn fallegi Nuuk á Grænlandi. Sumir þar vilja loka landinu fyrir erlendri flugumferð.

Það er ekki ýkja flókið að takmarka flugferðir til og frá þessum löndum. Aðeins fjögur flugfélög fljúga til og frá þessum nágrannaþjóðum okkar reglulega: SAS, Air Greenland, Atlantic Airways og Air Iceland Connect.

Köllin sem við vitnum til koma frá pólitíkusum í báðum löndum eins og lesa má um meðal annars hér og hér.

Nágrannar okkar vilja fara að öllu með gát. Eitthvað annað en stjörnvöld á Íslandinu góða.