Við getum verið þokkalega sammála um að Ítalía, Suður-Kórea, Kína og Íran eru ekki vænlegustu áfangastaðirnir svona ef þú ert viðþolslaus ef þú kemst ekki út í heim prontó. En hvert er gáfulegt að halda? Hvar er faraldurinn ekki að gera usla þegar þetta er skrifað?

Vísindamenn flestir á því að kórónafaraldurinn verði mun verri áður en ástandið batnar. Skjáskot
Nokkur þau lönd sem áhyggjulaust er að skottast til og njóta séu nýjustu tölur réttar eru meðal annars Tyrkland (1 tilfelli), Andorra (1 tilfelli), Jórdanía (1 tilfelli), Liechtenstein (1 tilfelli), Úkraína (1 tilfelli), Srí Lanka (2 tilfelli), Mónakó (2 tilfelli), Jamaíka (2 tilfelli), Kúba (3 tilfelli), Litháen (3 tilfelli), Nýja-Sjáland (5 tilfelli), Malta (6 tilfelli), Kýpur (6 tilfelli), Marokkó (6 tilfelli) eða Búlgaría (7 tilfelli.) Til samanburðar eru 109 sýktir á farsæla Fróni.
Vitaskuld eru þjóðir þarna úti sem eru tæknilega alfarið lausar við vírusinn en það yfirleitt smærri lönd Afríku sem hafa fá tæki eða tól til að rannsaka nokkurn skapaðan hlut.
Að þessu sögðu er kjánalegt annað en gefa sér að sýkingum fjölgi umtalsvert hvarvetna í heiminum nema ef vera skyldi Kína hvers tölfræði sýnir að tilvikum fer fækkandi. En tölfræði frá stjórnvöldum í Kína er oftar en ekki tóm steypa og leyndur áróður. Lítt að marka það.
En góða ferð samt 🙂







