Wow hvað tími var til kominn. Flaggflugfélag Íslands, Icelandair, hefur loksins fengið afhenta glænýja þotu frá Boeing verksmiðjunum. Fyrsta nýja þota flugfélagsins á þessari öld 🙂

Nýjasta djásnið í flugflota Icelandair. Hún lækkar meðalaldur flugflota Icelandair heldur betur. Mynd Boeing
Forstjóri og stjórnarmenn Icelandair væntanlega haugfullir úti í Seattle í Bandaríkjunum þegar þetta er skrifað enda Boeing yfirleitt ekki að spara veigarnar þegar þeir afhenda nýjar vélar. Boeing 737-Max er tegundarheiti nýju vélarinnar en hún verður væntanlega komin í sinn fyrsta áætlunartúr strax í þessum mánuði.
Hamingjuóskir frá ritstjórn Fararheill sem lengi hefur gagnrýnt risaeðlustefnu Icelandair þegar kemur að þotum flugfélagsins. Stjórn flugfélagsins meira að segja kosið að leigja 20 ára plús gamlar vélar þegar bæta þarf við vélum með litlum fyrirvara. Ímyndið ykkur bílaleigu sem leigir bara út bíla sem framleiddir voru fyrir síðustu aldamót. Sú yrði líklega ekki langlíf. Sérstaklega ekki þegar prísarnir eru í himinhæðum miðað við aðrar bílaleigur.
Þegar þetta er skrifað er meðalaldur flugflota Icelandair 22, 2 ár samkvæmt vefmiðlinum Airfleets. Floti flugfélagsins frá þeim tíma þegar varla nokkur sál hafði áhyggjur af eldsneytiseyðslu og mengun.
Nýja vélin mun lækka meðalaldurstöluna lítillega og vonandi setja forsvarsmenn þess enn meiri kraft í að endurnýja flotann. Þó ekki nema til að draga úr mengun og viðbjóð en flugvélar bæta drjúgt við þá mengun sem hangir yfir okkur öllum stundum.







