V etrarsólstöðum er víða fagnað með sérstæðum hætti. Ekki hvað síst í borginni Brighton á Englandi en þá mæta allir á sinn stað á réttum tíma með heimatilbúnar lugtir.

Myrkur víkur fyrir heimatilbúnum lugtum í Brighton. Mynd Dominic´s Pics

Myrkur víkur fyrir heimatilbúnum lugtum í Brighton. Mynd Dominic´s Pics

Heimamenn kalla þetta Klukkubrennu, Burning the Clocks, sem er táknræn athöfn til að víkja burt myrkrinu þennan lengsta dag ársins sem hér er 21. desember eins og víðar.

Fer skrúðganga velbúinna íbúa um bæinn með sérstakar lugtir í hönd sem velflestar eru heimagerðar og margir leggja töluvert í enda verðlaun í boði fyrir flottustu luktirnar. Gengið er um miðborgina um tíma áður en göngunni lýkur við ströndina í Madeira-götu þar sem öllu er hent á bál og brennt til kaldra grunna.

Fínasta sjónarspil á þessum yfirleitt kalda degi í Brighton og alveg príma stopp fyrir ferðaþyrsta. Það er jú oggupons ljúfara veður hér en heimavið á Fróni svona heilt yfir. Heimasíða hátíðarinnar hér. Svo er borgin sjálf með þeim betri í Englandi eins og lesa má um í vegvísi okkar.