Ljóst má vera að Rósa nokkur Kjeld hefur aldrei lesið Fararheill. Ella kæmi henni eða öðrum ekki á óvart að sjá verulegan verðmun á flugi með Wow Air eftir því hvort bókað er á íslenskum vef Wow Air eða dönskum vef Wow Air.

Svona ferðu framhjá öllum hindrunum hjá Wow Air

Svona ferðu framhjá öllum hindrunum hjá Wow Air

Rósa gerir athugasemd við mikinn verðmun á nákvæmlega sama flugi Wow Air frá Köben til Keflavíkur og til baka en fargjaldið fyrir pakkann á mann reyndist kosta tæplega 47 þúsund krónur á íslenskum vef Wow Air en tæplega 27 þúsund krónur á dönskum vef flugfélagsins. Allra verst þykir henni, eðlilega, að geta ekki keypt flugið á dönskum vef Wow Air og ástæðan sögð vera gjaldeyrishöft!!!

Það er fáránleg afsökun að kenna gjaldeyrishöftum um og ótrúleg lítilsvirðing sem Wow Air sýnir þar viðskiptavinum sínum.

Tæknilega séð geta verið ástæður fyrir þessum verðmun á nákvæmlega sama flugi og því fer fjarri að Wow Air sé eitt um þetta. Slíkan mismun má finna hjá Icelandair sem og öðrum flugfélögum heimsins með reglulegu millibili. Ein líkleg ástæða getur verið sú að Wow Air hafi verið með sérstök tilboð fyrir Dani í gangi þegar leitað var. Að tiltekin sæti í borð í þessum flugferðum hafi verið á afslætti fyrir danska neytendur. Eina ráðið til að koma í veg fyrir að aðrir njóti góðs af er að blokkera kreditkortagreiðslur frá öðrum löndum en Danmörku.

Reyndar má setja lögfræðilegt spurningarmerki við slíkan gjörning. Evrópulög kveða á um að allir íbúar Evrópu skuli jafnir standa í öllum viðskiptum alls staðar í álfunni. Og víst er Danmörk í Evrópu eins og Ísland.

En þó Wow Air reyni að blokka sín megin gildir það ekki um fjölmarga aðra aðila á borð við flugleitarvefi. Mjög auðvelt er að sneiða hjá Wow Air í þessu tilfelli en bóka samt flugið á flottu verði. wowkob

Hvernig?

Munum að á vef Wow Air kostar flugið 17. til 22. mars með Wow Air til og frá Köben 46.997 krónur.

Byrjum á að kíkja á Dohop. Eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti finnst þetta flug þar niður í 29.619 krónur þar. Töluvert lægra verð en finnst á vef Wow Air hér heima en líka þrjú þúsund krónum hærra verð en Wow Air býður í Danmörku.

Sem sagt ekki nógu gott.

Við leitum víðar fanga. Næst prófum við flugleitarvélina Momondo sem ritstjórn Fararheill telur almennt þá bestu. Flugið með Wow Air til Köben og tilbaka umræddan tíma finnst þar niður í 21.955 krónur. Það er wows7alvarlega gott tilboð. Rétt rúmlega tíu þúsund kall hvor leið fyrir sig og það með tiltölulega stuttum fyrirvara líka.

Með því að framkvæma verðleit á aðeins tveimur flugleitarvélum erum við búin að lækka upphaflegt íslenskt verð Wow Air um 25.042 krónur!

Það er alvöru peningur ekki satt? Svo er fólk hissa á því hversu oft og mikið Fararheill brýnir fyrir fólki að gera verðsamanburð. Það getur verið besta tímakaup sem þú hefur nokkurn tíma haft.