Ný hraðtilboð Icelandair litu ljós dagsins í dag og í boði til hádegis á morgun. Allsæmilega boðið að þessu sinni og safaríkast að komast til Birmingham og Kaupmannahafnar fram og aftur undir 30 þúsund krónum.

Flugtilboð í gangi þessa stundina hjá báðum íslensku flugfélögunum
Sértilboð aldrei leiðinleg per se en það sem setur skugga á hraðtilboðin að þessu sinni er sú staðreynd að Wow Air er enn að bjóða svokölluð hlaupárstilboð sín sem gilda að nokkru leyti á sömu dagsetningum og sértilboð Icelandair.
Þannig hættir tæplega 28 þúsund króna fargjald fram og aftur til Köben að vera mjög sexí þegar Wow Air skýst með okkur sömu leið fyrir tæpar 23 þúsund krónur með tösku meðtalinni báðar leiðir. Sama með París. Þangað komist með Wow Air fyrir 25 þúsund með töskum meðan „hraðtilboð“ Icelandair kostar rúmlega 30 þúsund fram og aftur.
Þó verður að gefa plús í kladda Icelandair fyrir að bjóða fram og aftur til New York undir 40 þúsund krónum í maí og fram í byrjun júní. Ekki slæmur tími til að njóta þeirrar borgar.
Öll hraðtilboðin þennan daginn:
Birmingham frá 12.900 kr. aðra leið eða 13.950 punktum og 5.115 kr.*
Báðar leiðir frá 27.900 kr. eða 27.900 punktum og 12.145 kr.*
Edmonton frá 24.900 kr. aðra leið eða 19.950 punktum og 7.765 kr.*
Báðar leiðir frá 52.300 kr. eða 39.900 punktum og 17.255 kr.*
Kaupmannahöfn frá 13.400 kr. aðra leið eða 13.950 punktum og 4.765 kr.*
Báðar leiðir frá 27.300 kr. eða 27.900 punktum og 10.845 kr.
Manchester frá 12.900 kr. aðra leið eða 13.950 punktum og 5.115 kr.*
Báðar leiðir frá 27.400 kr. eða 27.900 punktum og 12.645 kr.*
New York frá 21.900 kr. aðra leið eða 18.950 punktum og 12.225 kr.*
Báðar leiðir frá 39.300 kr. eða 37.900 punktum og 19.955 kr.*
París frá 14.900 kr. aðra leið eða 14.950 punktum og 6.015 kr.*
Báðar leiðir frá 30.300 kr. eða 29.900 punktum og 12.665 kr.*
Toronto frá 22.900 kr. aðra leið eða 18.980 punktum og 7.765 kr.*
Báðar leiðir frá 47.100 kr. eða 37.960 punktum og 16.945 kr.
Washington 21.900 kr. aðra leið eða 18.950 punktum og 12.255 kr.*
Báðar leiðir frá 39.300 kr. eða 37.900 punktum og 19.955 kr.*







