Tíðindi

Kasta ryki í augu viðskiptavina

  30/07/2011No Comments

Það verður að teljast allsérstök og leiðinleg þróun fyrir íslenska ferðalanga að auglýst lágmarksverð á pakkaferðum til ýmissa áfangastaða miðast orðið við að viðskiptavinir komi sér sjálfir alla leið.

Skíðasvæðið Val di Fiemme. Þar er allt nánast fyrsta flokks sem og annars staðar í suður Tíról

Það er til að mynda raunin nú með skíðaferðir þær sem ferðaskrifstofan Vita býður í vetur en við bókun á slíkum ferðum hækkar verðið töluvert því auglýst verð fela ekki í sér kostnað við að koma sér til og frá flugvelli alla leið á áfangastað.

Á heimasíðu Vita má sjá að í boði eru skíðaferðir til þriggja áfangastaða á Ítalíu í beinu leiguflugi til Veróna. Er þar um að ræða Madonna di Giglio, Selva og Val di Fiemme sem allir eru fyrirtaks skíðastaðir. Auglýst lægsta verð er frá 139.900 plús 15 þúsund vildarpunktar. Sem gera 149.900 fyrir þá sem ekki eiga eða brúka slíka punkta.

En lítist mönnum vel á og hyggist bóka komast menn fljótt að því að ekki eru innifaldar rútuferðir frá Veróna til skíðasvæðanna og til baka. Og þær eru ekki alveg ókeypis enda um töluverðan akstur að ræða. Styst er til Val di Fiemme en rúntur þangað tekur um tvær klukkustundir. Ferðist par eða hjón saman borga þau 4.000 krónur á mann aðra leiðina eða sextán þúsund krónur alls í viðbót við uppgefið verð á ferðinni.

Aðeins lengra er til Madonna di Giglio en akstur þangað tekur rúmar tvær klukkustundir. Sama upp á teningnum þar að skíðaáhugaparið pungar út 16 þúsund í viðbót við uppgefið verð. Sama gildir um flutning til og frá Selva sem er þó lengst frá eða um það bil tvær og hálfa klukkustund.

Úttekt Fararheill.is leiðir í ljós að aðrir valkostir en rúta Vitaferða milli Veróna flugvallar og skíðasvæðanna eru flestir dýrari en 8.000 á mann svo ekki er hægt að setja út á verðið per se. Það er hins vegar dapurlegt að auglýsa pakkaferðir og tiltaka ekki allan kostnað.

Ekki síður finnst ekki stafur um það í umfjöllun um ferðirnar á vef Vita að við taki tveggja klukkustunda rútuferðir strax að loknu fluginu til að komast á áfangastað. Það getur sannarlega skipt máli fyrir fólk með börn því gera má ráð fyrir að heildarferðatími aðra leiðina geti þannig rúllað í tíu klukkustundir í heild sé gert ráð fyrir að fólk mæti tímanlega í Leifsstöð.