Bandarískt fyrirtæki, Mauiva, hefur einsett sér að gjörbylta hefðbundnum ferðavenjum í heiminum og gera það fyrir svipað eða lægra verð en hefðbundin ferðalög kosta.
Þessar stóru hugmyndir ganga út á að bjóða svokallar air cruise ferðir en í þeim er í boði að sjá alla helstu ferðamannastaði á einu bretti á sem skemmstum tíma með því að selflytja mannskapinn á milli með 30 manna einkaflugvélum og nota til þess minni flugvelli.
Geta viðskiptavinir ráðið hvort þeir taki bílaleigubíl á hverjum flugvelli til að skoða sig betur um á hverjum áfangastað fyrir sig og ráði sér sjálf ellegar að fyrirtækið sjái um allt frá a til ö.
Hefur Mauiva þegar boðið upp á tvær pakkaferðir þá tvo mánuði sem fyrirtækið hefur starfað. Annars vegar um austurhluta Bandaríkjanna og hins vegar vesturhlutann. Eru áfangastaðirnir í hverjum pakka um 20 talsins og eiga því viðskiptavinir að sjá allt það helsta í hverjum landshluta á aðeins sex dögum.
Er Mauiva í raun að bjóðast til að taka allt vesen úr ferðalögum því öryggisleit og bið á smærri flugvöllum í Bandaríkjunum og víðar er lítil sem engin og farþegar þurfa engar áhyggjur að hafa af farangri eða öðru því sem oft vill verða til þess að ferðalög verða meira taugastríð en unaðsstund.
Sem stendur býður fyrirtækið aðeins tvær pakkaferðir í Bandaríkjunum en stórar áætlanir eru uppi um Evrópu og Asíu strax á þessu og næsta ári.
Sem dæmi um hvað fyrirtækið býður má taka All American East pakkann þeirra á austurströnd Bandaríkjanna. Er flogið frá New York og á sex dögum er stoppað við Niagara fossinn, í Toronto, við Hershey vatn, í Lancaster, Harrisburg, Washington, Vernon fjall og Arlington.
Innifalið í pakkanum er gisting á fjögurra stjörnu hótelum, keyrsla milli staða og til og frá flugvelli og ellefu máltíðir auk aðgangs að öllum stöðum sem skoðaðir verða. Kosta herlegheitin kosta tæp 174 þúsund krónur á manninn miðað við gengi dagsins. Einnig er hægt að taka flug+bíl pakka og er kostnaðurinn þá aðeins 119 þúsund íslenskar krónur.
Miðað við bókanir á heimasíðu Mauiva er ekki laust við að þessi þjónusta sé vinsæl. Heimasíðan hér.






