Kári í jötunmóð á misfarsæla Fróni plús megastress og megastúss vegna jóla og áramóta. Á sama tíma má leggjast í flæðarmálið í Karíbahafinu og velta sér um í mjúkum sandinum stress- og stússlaus með öllu fyrir svo lítið sem 70 þúsund krónur á kjaft.

Heima í stressinu eða þetta hér? Varla spurning…

Ekki slæmur pakki ef þú spyrð okkur. Ekki langt síðan Úrval Útsýn auglýsti flug til og frá Kúbu fyrir hundrað þúsund krónur á kjaft. Nú geturðu valið milli flugs til Kúbu, Dóminíkanska eða Jamaíka í desembermánuði allt niður í 70 þúsund á haus og fengið aðventudúllerí í kaupbæti í Brussel.

Hin risastóra flug- og ferðaþjónusta TUI býður þessa stundina upp á flug fram og aftur til Karíbahafs frá Brussel í Belgíu allt niður í 44 þúsund krónur í nóvember og desember. Hvers vegna segja frá því kann einhver að spyrja. Jú, Wow Air býður sömu mánuði hreint ágæt fargjöld fram og aftur til Brussel eða lægst báðar leiðir niður í 18 þúsund krónur.

Sem þýðir, kæru lesendur, að ef þig virkilega, virkilega langar í súpersól í kaldasta mánuðinum hér heima er hægt að negla það fyrir allt niður í 70 þúsund krónur alla leiðina. Þá auðvitað aðeins miðað við flugið og auðvitað dettur inn kostnaður vegna gistingar og dúllerís. En þrátt fyrir flug til Belgíu áður en haldið er af stað í sólina fæst túr til Kúbu sem dæmi, samt 60 þúsund krónum ódýrara en Úrval Útsýn var að bjóða hér fyrr í mánuðinum.

Heillar okkur hér og ábyggilega fleiri þarna úti 🙂

Allt um málið hér.