Sólin í Asíu lítt síðri en sólin í karabíska. Og þegar hagl lemur glugga hér heima í desember er eðlilegt að óska sér að við séum annars staðar þar sem óhætt er að pakka aðeins sjali og sundbuxum og samt komast vel af.

Hvernig hljómar ódýr jólavertíð í Indlandshafinu?
Ó, hve indælt er fyrir ferðaþyrsta að vera búsettir í Evrópu. Samkeppni í flugi og ferðum svo mikil að þrátt fyrir að þotueldsneyti hafi hækkað um 400 prósent þetta haustið, eru samt í boði flug og ferðir sem kosta svo lítið að íslenskir ellilífeyrisþegar og öryrkjar hafa efni á að ferðast.
Ekki hvað síst ef Srí Lanka er að heilla. Þangað er nú komist alla leið frá Íslandi, með stoppi í London, og heim aftur fyrir réttar 70 þúsund krónur.
Hallelújah fyrir því og það stór orð frá trúlausu fólkinu á ritstjórn Fararheill. Srí Lanka er jú ekki næstum nákvæmlega hinu megin á hnettinum og þar ekki aðeins sól og sumarvindar heldur og gnótt af forvitnilegum hlutum að vitna.
Ferðaskrifstofan TUI er þessi dagana að bjóða beint flug frá London til Srí Lanka og heim aftur fyrir sömu upphæð og það kostar að vera áskrifandi að Stöð 2 í þrjá mánuði eða svo. Alls 48 þúsund krónur fram og aftur þegar best lætur. Matur um borð og taska innifalin í verðinu.
Við þurfum auðvitað að negla flugið til London og frá líka en nóg framboð af slíku og lágmarksverð báðar leiðir undir 15 þúsund krónur á manninn. Alls því 65 þúsund kall til Srí Lanka og er bara brilljant gott verð.
Auðvitað býðst þér líka að fljúga beint til Indlands yfir sama tímabil með Wow Air án tösku og í níðþröngu sæti fyrir 90 þúsund krónur lægst í desember. Þá áttu auðvitað eftir að koma þér til Srí Lanka sem bætir þetta 20 til 30 þúsund krónur við pakkann. Sem sagt um helmingi dýrari jólapakki. Og Srí Lanka, ólíkt Nýju-Delí, er ekki mekka mengunar og viðbjóðs sem dregur okkur mun fyrr til dauða en ella…







