Þið hafið kannski tekið eftir þessu fólki. Náhvítt í framan og situr gjarnan við flustöðvarbarinn og þambar jafnvel þó klukkan sé fimm um morgun og tveir tímar í flugið.

Það er oft ekki mjög flókið að spotta út þá sem eru hræddir við að fljúga á stærri alþjóðaflugvöllum. Hjálpum þeim. Mynd Corey Seeman
Ágætt svona áður en fólk dæmir annað fólk sem sumblar á flugvellinum að hafa í huga að drykkja er fyrir suma eina leiðin til að umbera flughræðslu sem auðvitað er mest áður en gengið er um borð.
Við seljum það ekki dýrara en við keyptum en okkur skilst að þeir telji í hundruðum sem árlega sækja sérstök námskeið hérlendis til að ráða bug á flughræðslu.
Við seljum það heldur ekki dýrar en við keyptum en tónlistarmiðillinn Spotify birti nýlega fréttatilkynningu þess efnis að tilteknir vísindamenn hefðu komist að því að tónlist hjálpar helling glími fólk við flughræðslu.
Spotify auðvitað alls enginn hagsmunaaðili eða þannig en kannski er sannleikskorn í greininni og hjálpi það einum aðila er það þess virði.
Í grunninn snýst þetta ekki aðeins um tónlist heldur ákveðna tónlist. Það er að segja lagstúfa með tilteknum fjölda slaga, beats, sem vísindamenn í London segja að hjálpi flughræddum að slaka á fyrir flug og á meðan flugi stendur. Nánar tiltekið öll lög sem hafa 60 slög á mínútu. Það á víst að vera gullna hliðið að slökun að minnsta kosti fyrir einhverja.
Það skondna kannski að þau lög sem í þennan flokk falla eru sömu lög og slökunarmeistarar á jörðu niðri nota gjarnan til að fá gesti til að slappa af. Sem þýðir sennilega að uppgötvun vísindamannanna er ekki svo merkileg eftir allt saman.
Hér að neðan dæmi um lög sem liggja í og með 60 slögum á mínútu. Hver veit nema það hafi áhrif á einhvern.







