Azor-eyjar, Djerba, Brindisi, Marsa Alam, Catania, Olbia, Tenerife, Miami, Curacao og Agadir. Tíu staðir og þar af allnokkrir kannski aðeins ókunnir og framandi. Allt eru þetta áfangastaðir þýska flugfélagsins Airberlin sem þessa dagana er að selja farmiða á sérstöku jólatilboðsverði.

Jólatilboð Airberlin gætu gagnast þeim er vilja komast ódýrt út í heim en ekki alveg búin að gera upp hug sinn ennþá. Mynd Airberlin
Þjóðverjarnir í jólaskapi og hafa gengið svo langt að jólaskreyta tvær þotur sínar sem er hvorki lítið verk né ódýrt.
En ekki aðeins eru þoturnar jólalegar heldur og sérstök jólatilboðsfargjöld til sölu þessa stundina og fram til sjöunda desember sem óhætt er að mæla með. Þar er flugfélagið að selja flug fram og aftur til nokkurra vel valinna áfangastaða niður í rúmar fimmtán þúsund krónur aðra leið en fljúga verður á tímabilinu janúar til apríl. Taska innifalin í verðinu svo þetta er góður díll.
Kaupi fólk tvo farseðla með þessum hætti nú og leiti svo að lágum fargjöldum héðan til Þýskalands, sem oft eru í boði, er hægt að leyfa sér nokkurn lúxus á framandi eða óframandi slóðum næstu mánuðina.







