Opinbert heiti er California Restaurant Month eða Veitingahúsamánuðurinn í Kaliforníu en sá viðburðir stendur yfir í janúarmánuði ár hvert. Þá bjóða ýmis þekkt og óþekkt veitingahús í fylkinu öllu gestum upp á sérstaka matseðla á sérstökum prísum og þykir viðburðirinn hafa tekist vonum framar.
Það er heldur ekki á hverjum degi sem hægt er að setjast inn á fína veitingastaði og borða sig þar saddan á hálfvirði en það er mesti afslátturinn sem veitingahúsin bjóða þennan mánuð.
Um er að ræða veitingastaði hvarvetna í fylkinu en það er breytilegt ár frá ári hvaða ákveðnu staðir taka þátt hverju sinni.
Á vef ferðamálaráðs Kaliforníu hér birtist listi yfir veitingahúsin hvert ár með góðum fyrirvara og flokkað eftir svæðum.






