Það er ekkert leyndarmál að Fararheill hefur farið mikinn gegn svokölluðu bókunargjaldi sem Wow Air og Icelandair settu fyrirvaralaust á alla viðskiptavini sína og komust upp með þó rökin fyrir því gjaldi séu vafasöm í meira lagi.
Sérstaklega hefur farið fyrir brjóst manna, og það fleirum en ritstjórn Fararheill, að bókunargjaldið hjá Wow Air er ekki innifalið í auglýstu verði á flugi hjá félaginu. Þó kemst enginn í loftið nema greiða það gjald.
Þó aðeins 900 krónur sé á hvert flug á mann og kannski skipti litlu fyrir marga þá telur það sannarlega þegar heilu fjölskyldurnar bregða undir sig betri fætinum. Fjögurra manna fjölskyldan sem skreppur með Wow Air fram og til baka greiðir 7.200 krónur aukalega í bókunargjald. Það er sannarlega peningur.
Ekki er aðeins við Wow Air að sakast varðandi bókunargjaldið. Icelandair leggur líka svoleiðis gjald á ferðir sínar en þar er það þó innifalið í auglýstu verði.
En nú hefur Wow Air loks tekið aðeins við sér og nýjasta auglýsing félagsins á flugi á tilboðsverði til London og Kaupmannahafnar er með stærra „smáu“ letri en gengur og gerist og tekið sérstaklega fram að bókunargjald bætist ofan á auglýst verð. Eins og sést á síðasta skeyti þeirra til allra á póstlista Wow Air.
Er ekki kominn tími á borgarferð?
Köben: Verð frá 12.900 kr. og 14.900 kr.**
Berlín: Verð frá 14.900 kr.*Ferðatímabil: Berlín: Janúar og febrúar 2013. Köben**: Desember 2012 (frá 12.900 kr.) og janúar og febrúar 2013 (frá 14.900 kr.).
Bókunartímabil: Til miðnættis mánudaginn 3. desember.
Smáa letrið:
Flug aðra leið með sköttum og öðrum gjöldum, bókunargjald leggst ofan á. Valdar dagsetningar, valin flug og takmarkað sætaframboð. Ekki gleyma að taka með þér sparifötin og tappatogara!






