Icelandair hefur ákveðið að auka enn frekar samstarf sitt við bandaríska flugfélagið JetBlue sem gæti nýst landanum hér á klaka í framtíðinni. JetBlue er að mati Fararheill besta flugfélagið vestanhafs.

Auðveldari tengingar gætu þýtt auðveldara flug til framandi staða í Karíbahafi eða Suður Ameríku.
Flugfélögin tvö hafa reyndar verið í samkrulli frá árinu 2011 en reyndar lítið sem ekkert farið fyrir því hérlendis. Eftirleiðis, gangi allt eftir, verður tengiflug á mörgum flugleiðum vestur um haf og sömuleiðis flug með Icelandair til Evrópu einfaldara fyrir viðskiptavini.
Fararheill hefur meðal annars gegnum tíðina bent á vænlega möguleika til að komast til Karíbahafs og eða landa í Mið- og Suður Ameríku gegnum JetBlue. Þar risastór plús að þjónusta bandaríska flugfélagsins er langtum betri en flestra annarra þarlendra flugfélaga og fargjöld þeirra tiltölulega lág í samanburði.
Gott skref.







