Meirihluti íslenskra ferðalanga kjósa að ferðast á nýjan og óþekktan stað á þessu ári ef marka má síðustu könnun Fararheill en 44 prósent þátttakenda svöruðu á þá leið. Mættu samkvæmt þeirri niðurstöðu íslenskar ferðaskrifstofur vakna aðeins til lífsins og bjóða fleira en þær gera í dag.
23 prósent þátttakenda ætla sér þangað sem bjórinn er ódýr þetta árið og kemur vart heldur á óvart enda bjórinn orðinn fokdýr hérlendis. Þá ætla 17 prósent til Benídorm í sumar og 16 prósent vilja í gönguferðir erlendis eða spila golf.
Ritstjórn þakkar kærlega fyrir góða þáttöku en 274 einstaklingar tóku þátt að þessu sinni. Ný könnun er komin á vef Fararheill. Þar er spurt hvort verðlagning íslenskra ferðaskrifstofa sé eðlileg.






