Meðlimir í netklúbb Heimsferða fengu hreint ágæta sendingu í pósti sínum þar sem auglýstar voru borgirnar Jerez og Sevilla á sértilboðskjörum. Hljómaði yfirskriftin: „Sevilla og Jerez í haust frá 19.900. Örfá sæti laus.“
Við fyrstu sýn er þetta sennilega besta tilboð sem Heimsferðir hafa nokkru sinni boðið en vonbrigði gera vart við sig strax og pósturinn er lesinn. Kemur nefninlega í ljós að aðeins er um að ræða ferðir til Íslands frá Jerez eða Sevilla. Annars vegar frá Jerez þann 26. september og hins vegar frá Sevilla þann 3. október.
Yfirskriftin er því röng því í raun er ekki verið að auglýsa ferðir til Spánar heldur til Íslands þó vissulega sé ekkert hægt að kvarta yfir verðinu. Virðast auglýsingafrömuðir Heimsferða enn ekki átta sig á því að svona rykkast í augu neytenda gekk kannski 2007 en ekki árið 2009.






