Tíðindi

Innistæðulausar auglýsingar Iceland Express

  22/05/2010maí 17th, 2014No Comments

Einhverra hluta vegna virðist flugfélagið Iceland Express njóta þess í þaula að ljúga að hugsanlegum viðskiptavinum sínum. Tvær fyrstu vikurnar í maí hafa glumið í útvarpinu auglýsingar félagsins um flug aðra leið allt sumarið til Osló á 14.900 með sköttum og gjöldum. Þetta á sér enga stoð í raunveruleikanum.

Fararheill.is kannaði í kjölfar slíkrar auglýsingar á Rás 1 þann 22. maí hvort rétt væri og niðurstaðan er að flugfélagið lýgur blákalt eins og eftirfarandi dæmi sýna.

Flug aðra leið frá Keflavík til Osló fyrir fullorðinn þann 23. júní: Heildarverð 21.635

Flug aðra leið til Osló fyrir fullorðinn þann 6. júlí: 27.005

Flug aðra leið til Osló fyrir fullorðinn þann 27. júlí: 27.005

Flug aðra leið til Osló fyrir fullorðinn þann 12. ágúst. 21.635

Fararheill.is kannaði fleiri dagsetningar en ofantaldar en engar þeirra skiluðu neinu fargjaldi með öllu á 14.900.