Höfuðborg Egyptalands hefur um áratugaskeið þótt frábær heim að sækja enda sló þar lengi vel hjarta Arabaheimsins og heimsókn í miðbæinn þótti skemmtilegt ævintýra. Voru enda þar barir og skemmtistaðir sem engan áttu sinn líka og þeir sköpuðu stemmningu sem hvergi fannst annars staðar.
Í dag er miðbær Kaíró lítið annað en ryk, rusl og mengun svo ekki sé minnst á gríðarlega mannmergð öllum stundum. Glansinn sannarlega farinn af enda fækkar óðum þeim ferðamönnum sem staldra við í borginni. Flestir þeirra taka sínar fljótaferðir um Níl eða fljúga beint til Rauða hafsins þar sem heilu ferðamannaborgirnar eins og Sharm al-Sheik hafa risið.
Ferðamenn til landsins sjá því raun afar lítið til Egyptalands eins og það er í dag. Lúxusstaðirnir við Rauða hafið eiga meira skylt við stemmningu á Benídorm en í Kaíró og siglingarnar koma að mestu alfarið í veg fyrir nokkur samskipti við heimamenn.






