Það er alltaf eitthvað athugavert þegar flug með svokölluðum lággjaldaflugfélögum reynast almennt kosta svipað eða meira en með þessum hefðbundnu. Það reynist að mestu raunin til Madríd á Spáni næsta sumar.

Ekki láta hugtakið „lággjaldaflugfélag“ endilega blekkja þig. Samsett mynd
Eins og fram hefur komið mun lággjaldaflugfélagið Iberia Express hefja flug milli Madríd og Keflavíkur næsta sumarið. Það verður í fyrsta skipti sem Icelandair fær samkeppni á þeirri leið.
Eitthvað reynist þó mygluð rúsínan í þessum pylsuenda. Lausleg úttekt Fararheill leiðir í ljós að alla þrjá sumarmánuðina finnst flug báðar leiðir á svipuðu eða lægra verði með Icelandair en hjá spænska lággjaldaflugfélaginu. Þetta má sjá á meðfylgjandi töflu en þar er tiltekið lægsta verð með þeim spænsku og íslensku í júní, júlí og ágúst.
* Leitað hjá báðum aðilum samtímis kl. 12.15 þann 18.nóvember 2015. Einni tösku bætt við hjá Iberia Express og miðað við miðgengi dagsins. Hafa skal í huga að verðbreytingar hjá flugfélögunum eru örar.







