Samkvæmt könnun Fararheill.is á verði flugferða frá Keflavík til London í apríl er Icelandair undantekningarlítið með betri verð á þeirri leið hvort sem um er að ræða aðra leið eða fram og til baka miðað við að pantað hafi verið þann 3. mars.

[content_locker id=’233907280′ name=’Lloc’] Einn mánuður er nú til stefnu ætli fólk sér að ferðast á annað borð um páskaleytið. Margir láta það eðlilega eftir sér að fljúga út í styttri ferðir. Samkvæmt ítarlegri úttekt þann 3. mars reyndist Iceland Express dýrara en Icelandair 24 daga af 30 dögum aprílmánaðar. Reyndist munurinn vera frá tvö þúsund krónum og upp í sex þúsund þegar mestur var munurinn.[/content_locker]