Tíðindi

Icelandair í sæng með JetBlue

  02/05/2011ágúst 27th, 2015No Comments

Flugfélögin Icelandair og JetBlue í Bandaríkjunum munu undirrita samstarfssamning sem gerir Icelandair kleift að bjóða ýmis tilboð á flugferðum innan Bandaríkjanna sem ekki voru áður í boði. Sömuleiðis getur JetBlue boðið sínum farþegum flug til Íslands og áfram með vélum Icelandair.

Tilkynnt var um þetta fyrir stundu og verða samningar þarna að lútandi undirritaðir á morgun.

Er þetta rós í hnappagat Icelandair sem á í svipuðu samstarfi við Alaskan Airlines og SAS. JetBlue hefur lengi verið með vinsælli flugfélögum Bandaríkjanna og þykir þjónusta þeirra betri en í meðallagi. Þá er verðlag JetBlue í lægri kantinum miðað við það sem gerist vestanhafs.

Vefur JetBlue hér.

Vefur Icelandair hér.