Lífeyrissjóðsflugfélagið Icelandair mun eignast 51 prósenta hlut í ríkisflugfélagi Grænhöfðaeyja, Cabo Verde Airlines, og taka yfir rekstur þess flugfélags síðar á árinu.

Stjórn Icelandair vildi einfalda allan rekstur sinn fyrr á árinu. Yfirtaka ríkisflugfélags Grænhöfðaeyja stemmir illa við það.
Íslenskir útrásarvíkingar komnir í ham að nýju og reynslan aldeilis góð af slíku. Samkvæmt fregnum frá portúgölskum miðlum hefur ríkisstjórn Grænhöfðaeyja ákveðið að taka tilboði Icelandair í 51 prósenta ráðandi hlut í flugfélaginu hvers gengi hefur verið mjög upp og niður og þá aðallega niður síðustu árin.
Óska verður forráðamönnum lífeyrissjóðsfyrirtækisins Icelandair til hamingju með þennan áfanga. Nú þurfa þeir ekki aðeins að hafa áhyggjur af slælegu gengi félagsins hér heima heldur og eyða formúgum í að preppa upp lítið flugfélag í Afríku.
Einfeldingar gætu hugsað sem svo að nær væri að Icelandair eyddi fjármunum í að nútímavæða sinn eigin flugflota í hvelli í stað þess að rúnta um á rellum sem framleiddar voru fyrir síðustu aldamót og menga eftir því. En stjórnendur Icelandair með aðrar og mikilfenglegri hugmyndir.
Kannski gengur það upp og kannski ekki. Sem undir venjulegum kringumstæðum væri bara vandamál Icelandair. En þegar tillit er tekið til þess að stærstu eigendur Icelandair eru lífeyrissjóðir landsmanna gæti þetta veðmál Icelandair merkt að einhverjir ellilífeyrisþegar framtíðarinnar fá töluvert minna í umslagið sitt um hver mánaðarmót.
Það hangir því töluvert meira á spýtu hér en hagnaður eða tap einkafyrirtækis..







