Ýmsir hafa hlegið að okkur síðustu misserin fyrir að gefa Mogensen og hans fólki hjá Wow Air falleinkunn fyrir of mikla greddu og fáránlega áfangastaði. Tíminn leiddi í ljós að við höfðum rétt fyrir okkur. Og nú, aldrei þessu vant, gefum við feita blessun á ferðir til Vancouver í Kanada.

Mogensen gert feit mistök í fortíðinni. En flug til og frá Vancouver í Kanada steinliggur. Skjáskot

Lesendur okkar vita og muna að við gáfum feita falleinkunn á St.Louis, Cincinnati, Dallas og Cleveland sem voru nýir og ferskir áfangastaðir Wow Air í vor og sumar sem leið.

Það var ekki sjéns í helvíti að þessir áfangastaðir skiluðu Skúla Mogensen seðlum í vasa og fyrir því gróflega þessar ástæður:

  • Ekkert risaflugfélag býður flug milli neinna af þessum stöðum beint til Evrópu. Þarf einhver að efast um að British Airways, Iberia, Lufthansa, KLM eða Norwegian hafi eytt alvarlegum fjárhæðum í að kanna fýsileika þess og komið út á núlli eða verra.
  • Að Dallas frátalinni eru allar þessar borgir í miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Miðvesturríkin eru fátækustu ríki landsins og þar að auki mælist mesta þjóðernishyggjan í öllu landinu. Með öðrum orðum; íbúar þessara ríkja eru lítt fyrir ferðalög og hvað þá að greiða hönd og fót fyrir vatn og lítinn poka af Doritos í flugi.
  • Wow Air hefur þegar á sér slæmt orð vestanhafs fyrir þjónustu fyrir neðan hellur. Ekki aðeins er hið íslenska Wow Air á skítalista Samgönguráðuneytis Bandaríkjanna heldur og fær flugfélagið afar neikvæðar einkunnir á velflestum samfélagsmiðlum og allir vita að Kaninn fylgist betur með samfélagsmiðlum en sinni eigin fjölskyldu.

En túrar til og frá Vancouver í Kanada munu rokka. Ekki aðeins er Vancouver sennilega skemmtilegasta borg landsins heldur og eru ekki margir samkeppnisaðilar að bjóða eitthvað spes frá borginni til Evrópu. Stopp á Íslandi hreint fyrirtak líka fyrir tiltölulega ríka íbúa borgarinnar.

Vel gert hjá herra Mogensen þó fyrr hefði verið betra.

En það er hængur á hér…

Hver er sá hængur kann einhver að spyrja?

Jú, fyrsta flug Wow Air til Vancouver er í júní á næsta ári. En við hér erum fjarri því sannfærð um að Wow Air verði yfirhöfuð til sem flugfélag í þeim herrans mánuði.

Það þarf engar fréttir til að vita að Wow Air hangir á horriminni hvað fjármagn varðar. Víst segja fjölmiðlar að nýlegt hlutabréfaútboð Wow Air hafi gengið súper dúper og allt sé í gúddí. En við höfum engar sannanir fyrir því annað en tilkynningar flugfélagsins sjálfs.

Vonandi fyrirgefur fólk okkur fyrir að taka tilkynningum með meira salti en finnst í íslenskum saltfiski frá Íslandi í Portúgal. Það svona dulítið eins og yfirlýsingar allra íslensku bankanna í september 2008: Allt í gúddí og ekkert að sjá.

Á mannamáli: frábært að Wow Air taki upp flug til og frá Vancouver. En verður flugfélagið Wow Air á lífi í júní 2019? Við veðjum engum peningum á slíkt…