Könnun Fararheill á flugfargjöldum til Berlínar nú í júnímánuði leiðir í ljós að Icelandair er alls ekki samkeppnishæft við Wow Air né Airberlin á þeirri leið. Ódýrasta fargjald Icelandair er 25 þúsund krónum dýrara en það sem Wow Air býður best.

Við renndum yfir ódýrustu fargjöldin í boði hjá þessum þremur aðilum og Wow Air stendur upp úr en þar á bæ bjóða menn flug fram og aftur á 57.053 krónur að meðtöldu bókunargjaldi. Hjá Airberlin, þýska flugfélaginu sem hingað flýgur ört þessi dægrin, reyndist allra lægsta verð 64.512 krónur en Icelandair bauð best þessa sömu leið á 82.980 krónur.

Hafa skal í huga að Icelandair leyfir 20 kíló af farangri í sínum ferðum ólíkt hinum tveimur en jafnvel þó tösku sé bætt við hjá Wow og Airberlin er gjaldið enn langt undir því besta sem Icelandair býður.

Til umhugsunar: Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn en stöku fargjald Airberlin aðra leiðin heim til Íslands fæst á lægra verði en ódýrasta heimflug Wow. Þannig má ef menn eru á nippinu peningalega spara tvo þúsundkalla eða svo og panta farið út með Wow og heim með Airberlin. En það er varla munur sem máli skiptir.