Þó vottað hafi fyrir samkeppni annars lagið milli flugfélaganna Icelandair og Iceland Express gegnum tíðina hefur sú samkeppni sjaldan verið eins áberandi og nú en síðarnefnda félagið undirbauð hraðtilboð Icelandair til London skömmu eftir að hið fyrrnefnda hóf sölu á sínum ferðum.
Er þetta vel enda nýtist öll samkeppni íslenskum neytendum. Hraðtilboð Icelandair var flug aðra leið til London á 12.900 krónur en nokkrum klukkustundum eftir að það tilboð var gert opinbert auglýsti Iceland Express sínar ferðir á sama tímabili á 11.900 krónur.
Er að öðru leyti um sams konar tilboð að ræða. Sama ferðatímabil frá 10. nóvember til 15. desember 2010 eða eðaltími til að kíkja til London fyrir jólin. Tilboð beggja gilda til miðnættis í kvöld.
Heimasíða Iceland Express hér.






