Borið hefur á því að nokkur fyrirtæki og einstaklingar sem auglýsa íbúðir til leigu til skemmri tíma í London fyrir ferðafólk séu eingöngu að svína og svindla þegar upp er staðið.

Óprúttnir aðilar stunda leigusvik gagnvart ferðafólki. Hér á hið fornkveðna við; sé það of gott til að vera satt....

Óprúttnir aðilar stunda leigusvik gagnvart ferðafólki. Hér á hið fornkveðna við; sé það of gott til að vera satt….

Trixið er gamalkunnugt: auglýsa eign til leigu, henda upp fölsuðum myndum af staðnum og heimta fyrirframgreiðslu. Fólk kíkir á vefinn, sér íbúðina, fínar myndirnar og hugsar sig ekki tvisvar um enda leigan oft æði lág. Hins vegar kemur strax í ljós vandamál eftir að greiðsla hefur verið send; engin leið að ná í leigusalann eða fá staðfestingu.

Að hluta til er skiljanlegt að fólk láti blekkjast enda almenningur alls staðar ginkeyptur fyrir gylliboðum. Íbúð á besta stað í London og á ótrúlega góðu verði er auðvitað tilboð sem grípa skal ekki seinna en strax. Verst kannski að hið fornkveðna að sé það of gott til að vera satt þá er það of gott til að vera satt er svo fullkomlega hárrétt að vitiborið fólk ætti að hafa kveikt á þessari peru. Nóg er af dæmunum til að læra af um fólk sem misst hefur fúlgur fjár vegna gylliboða.

Tæplega SJÖ ÞÚSUND ferðamenn féllu fyrir slíku svindli á síðasta ári í London einni saman og það er jú aðeins ein borg af þúsundum. Óhætt er að brýna fyrir fólki að láta sér ekki detta í hug að greiða fyrirfram fyrir íbúðir jafnvel þó vefsíður virðist æði fínar og löglegar. Allra síst að greiða með beinhörðum peningum með millifærslu. Öllu vænlegra er að nota kreditkort og stöðva þá greiðsluna ef í ljós kemur að loforð reynast innantóm.

Vefsíðan Scamwarners.com heldur utan um upplýsingar um falsleigjendur og er ágætt að kíkja þar inn áður en greitt er fyrir íbúðina fínu í Notting Hill. Ellegar bara vippa sér yfir á fimmfaldan heimsmeistara í gistibókunum hér að neðan og bóka hjá viðurkenndum aðilum. Það kann að kosta aðeins meira, en þar færðu alltaf það sem greitt er fyrir.