Alþjóðasamband flugfélaga, IATA, ætlar í hart vegna áætlana Evrópusambandsins að leggja á sérstaka útblásturskvóta á flugfélög frá og með 1. janúar 2012. Eftir þann tíma þurfa flugfélög að greiða sérstakt gjald fyrir þá loftmengun sem vélar þeirra valda.
Talið er víst að flugfélögin neyðist til að setja þann kostnað beint á reikning flugfarþega og því líklegra en ekki að fargjöld hækki eitthvað vegna þess strax um áramótin.
Segir forstjóri IATA að verið sé að refsa flugfélögum heims fyrir klúður ríkisstjórna álfunnar og gjaldtaka á flugfélögin ein og sér breyti engu um loftmengun í heimum. Þörf sé á miklu víðtækari aðgerðum en það til að hafa einhver áhrif.
Vill forstjórinn meina að gjaldtakan sé ólögmæt og hyggjast samtökin berjast gegn því að lögin verði að veruleika.






