
Nýtt og ferskt flugfélag en samt gamaldags. Skjáskot
Það er ekki aðeins mjög miður heldur beinlínis kjánalegt á 21. öldinni þegar önnur hver sála hefur eðlilega áhyggjur af framtíð þessarar fallegu plánetu okkar og vitað er að flugsamgöngur menga hlutfallslega mjög mikið.
Vitaskuld getur fólk prívat og persónulega kolefnisjafnað flugferðir sínar en það er líka þekkt að ef hafa þarf fyrir hlutunum eru mun minni líkur á að þeir gerist.
Icelandair hefur lengi vel boðið upp á slíka kolefnisjöfnun þó reyndar það fari fáránlega lítið fyrir því á bókunarvef þess flugfélags. Lággjaldaflugfélagið easyJet hefur tekið upp á sitt einsdæmi að kolefnisjafna flug allra sinna farþega, sem skipta milljónum, og mýmörg flugfélög önnur bjóða upp á slíkt sem jafn sjálfsagðan hlut og að innrita farangur. Sem það er árið 2021.
En kannski er forsvarsmönnum Play slétt sama um heiminn svo lengi sem seðlar detta í bankann…







