Það er illt í efni hjá Air France. Verkfall stórs hluta flugmanna félagsins hefur nú staðið í tíu daga og engin lausn í sjónmáli. En ólíkt mörgum öðrum verkföllum þar sem krafan er gjarnan um hærri laun snýst þetta um dálítið annað.

Snarfjölga á ferðum lággjaldaflugfélagsins Transavia en á kostnað Air France. Því eru flugmenn mótfallnir. Mynd Tristan Farsac

Snarfjölga á ferðum lággjaldaflugfélagsins Transavia en á kostnað Air France. Því eru flugmenn mótfallnir. Mynd Tristan Farsac

Rekstur Air France eins og annarra stórra evrópskra flugfélaga hefur verið þungur um skeið. Lággjaldaflugfélög njóta sívaxandi vinsælda enda almenningur með sífellt minna milli handanna og ekki síst eftir efnahagskreppuna 2008 hvers krumla hefur kreist meðaljóninn í Evrópu inn að beini.

Það er því ósköp eðlilegt að forráðamenn franska flugfélagsins leiti leiða til að rétta af reksturinn og fyrr í sumar var tekin sú ákvörðun að fækka vélum og flugferðum Air France en á móti fjölga ferðum og áfangastöðum lággjaldaflugfélagsins Transavia sem er að mestu í sameiginlegri eigu Air France og hin hollenska KLM.

Þetta er allt á pari við það sem aðrir hafa verið að gera undanfarin misseri. Lufthansa hefur verið að gera nákvæmlega þetta með sitt lággjaldaflugfélag Germanwings með töluvert jákvæðum árangri.

Gallinn við þetta prógramm að mati franskra flugmanna Air France er sú staðreynd að flugmenn lággjaldaflugfélaga almennt, þar með talið hjá Transavia, fá greidd töluvert lægri laun en kollegar þeirra hjá stóru flugfélögunum. Það segi því sig sjálft að eigi að fækka ferðum Air France og fjölga hjá Transavia fækkar vel launuðum störfum um leið.

Ekki svo að skilja að flugmenn víða sé ýkja vel borgaðir þvert á það sem margir telja. Þó sumir flugmenn Icelandair nái tveimur til þremur milljónum króna á mánuði þá er það í raun undantekning. Það eru hámarkslaun hjá flugmönnum margra evrópskra flugfélaga. Launahæstu flugmenn Air France ná 250 þúsund evrum í árslaun að meðaltali samkvæmt Business Insider. Þrjár milljónir króna gera miðað við gengið 230 þúsund evrum á ári svo launahæstu íslensku flugmennirnir eru ekki miklir eftirbátar þó Icelandair sé aðeins kettlingur miðað við Air France.

En ólíkt Icelandair hefur Air France ekki verið að sýna hagnað meðan blússandi gangur er hjá Transavia sem er smátt og smátt að verða eitt af stærstu lággjaldaflugfélögum Evrópu. Transavia hefur til dæmis flogið hingað til Íslands reglulega nú um skeið eins og Fararheill hefur greint frá.

Air France hefur boðið flugmönnum sínum að færa sig yfir til Transavia og halda launum sínum en þeir verða að vinna 15 prósent lengur fyrir vikið. Það hafa franskir talið af og frá sem útskýrir verkfallið nú.

Þetta er klemma því Air France getur ekki bætt reksturinn án þess að grípa til slíkra aðgerða sem auðvitað koma sér vel fyrir ferðaþyrsta í Evrópu. Aukin samkeppni lággjaldaflugfélaga mun aðeins þýða enn lægri verð og eða betri þjónustu en hingað til. Það er aðeins hægt að lækka verð niður að vissum botni og eftir það fer málið að snúast um hver er samt að veita besta þjónustu fyrir þá upphæð.

Hvað sem verður nú má ljóst vera að vegur stóru flugfélaganna í framtíðinni verður niður á við. Í öllu falli meðan laun almennings halda áfram að skreppa saman. Það verða franskir flugmenn að feisa fyrr en seinna.