Hmmm. Glögglega má sjá að starfsfólk Icelandair er ekki neitt himinlifandi með launakjör og starfsanda ef marka má könnun VR þar sem leitað er að fyrirmyndarfyrirtæki ársins. En eitt risafyrirtækja landsins sem ekki leyfir sínu fólki að taka þátt í þeirri könnun er Wow Air Skúla Mogensen.

Starfsmönnum Wow Air meinað að taka þátt í könnun VR?

Sumar kannanir eru einfaldlega marktækari en aðrar.

Ein alls ómarktæk er svokölluð Ánægjuvog stofnunar sem kallar sig Stjórnvísi. Samkvæmt henni reyndust viðskiptavinir ánægðastir með BYKO á nákvæmlega sama tíma og nánast allir stjórnendur BYKO voru til rannsóknar vegna grafalvarlegra samkeppnislagabrota. Brota sem voru staðfest síðar og 400 milljóna króna sekt lögð á fyrirtækið.

Það verður að segjast eins og er að ef viðskiptavinir sömu verslunar og er í fjölmiðlum til rannsóknar fyrir einhver alvarlegustu samkeppnislagabrot sem komist hefur upp um, finnst fyrirtækið samt algjörlega best og mest í sínum flokki, er eitthvað alvarlega að þátttakendum í umræddri könnun. Lítt hugsandi fólk í öllu falli.

Ófáir yfirstjórnendur Wow Air hafa fengið pokann sinn undanfarin ár. Mynd Airbus

Annað gildir um könnun VR á fyrirmyndarfyrirtæki landsins. Þar gefst öllum starfsmönnum viðkomandi fyrirtækja að láta í ljós skoðun sína á því fyrirtæki sem þeir starfa hjá og það nafnlaust og órekjanlega.

Það vita allir vitibornir menn sem ennþá anda að starfsfólk almennt er ekki að gera veður yfir hinu og þessu opinberlega en lætur gjarnan gamminn geysa í góðra vina hópi.  Stundum jafnvel vegna reglna sem brjóta feitt í bága við opinbera löggjöf. Dæmi um það er risastór verslunarkeðja hérlendis sem meinar yfirmönnum að taka lengra frí í einu en tvær vikur í senn. Og eldsneytisrisi sem stærir sig af því að hafa stutt við bakið á íslensku afreksfólk í marga áratugi. Jafnvel þó eldsneytisfyrirtækið sé rétt rúmlega tíu ára gamalt.

Tvær komma fimm stjörnu af tíu mögulegum!!! Hratt hefur stjarna Wow Air fallið.

Í Fyrirmyndarfyrirtækiskönnun VR er þeim fyrirtækjum aðeins heimilt að taka þátt sem leyfa ÖLLUM starfsmönnum sem vilja, háum sem lágum, að taka þátt. Þannig vitum við til dæmis að þó feitir fjárfestar telji launakostnað Icelandair út úr öllu korti eru starfsmennirnir á allt öðru máli. Þeim finnst launin slefa í sæmileg í besta falli.

Eitt og annað skýtur í augu þegar farið er yfir árlegar niðurstöður könnunar VR. En sérstaklega skýtur það feitu ryki í augu að hvergi nokkurs staðar er að finna eitt stærsta flugfélag landsins með fleiri hundruð starfsmenn. Sama flugfélag og fjöldi ríkisstarfsmanna leitar nú leiða til að bjarga ef í alvarlegan harðbakka slær. Stjórnvöld gefa þannig sósíalisma fyrir fólkið langt nef og finnst fátt um að fjöldi fólks sefur á götum landsins og aldraðir fá víða nánast lélegri þjónustu en í gúlagi Stalíns.

En þegar kemur að einkafyrirtækjum í eigu milljarðamæringa er allt annað uppi á tening. Þá er sett saman stórt teymi fólks til að rétta fyrirtækjunum hjálparhönd ef allt fer í voll. Í því ljósi er dálítill Dónald Trömp í Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra.

Eitt slíkt fyrirtæki sem góðs nýtur frá stjórnvöldum er Wow Air milljarðamæringsins Skúla Mogensen. Sá státar sig af að hafa staðið fyrir stórauknum ferðamannastraumi til landsins og valdið straumhvörfum í íslenskri ferðaþjónustu. Það nokkuð til í því. En það er líka hafið yfir vafa að flugfélagið hefur verið illa rekið um árabil og fær hörmulegar einkunnir á öllum samfélagsmiðlum. Hróður Íslands ekki borist víða með Wow Air.

Steininn tekur kannski úr þegar Mogensen meinar starfsmönnum sínum að taka þátt í vinnustaðakönnun stærstu félagasamtaka landsins. Nema auðvitað að kappinn hafi ekki gert neitt slíkt, heldur sé staffinu hjá Wow Air slétt sama um þessa sömu könnun og kjör sín til langframa?

Líklegra verður að teljast að starfsmönnum hafi verið meinað að taka þátt. Mogensen er jú ekki þekktur fyrir að sýna þeim linkind sem ekki eru honum 100 prósent sammála.