„Fjögur ráðu­neyti vinna nú að gerð við­bragðs­á­ætl­unar vegna hugs­an­legra áfalla í rekstri mik­il­vægra atvinnu­fyr­ir­tækja sem gætu kallað á við­brögð af hálfu stjórn­valda. Þar undir heyra flug­fé­lög en miklar svipt­ingar hafa orðið að und­an­förnu í rekstri íslensku flug­fé­lag­anna, Icelandair og WOW Air.”

Forsætisráðherra virðist slétt sama um margt sem miður fer hérlendis. En einkarekin flugfélögin? Feitur mannskapur að hugsa upp leiðir til að bjarga þeim ef í harðbakka slær. Skjáskot

Svo greindi vefmiðillinn Kjarninn frá í lok júlímánaðar og vitnaði í Stöð 2 sem sagði frá því að tonn af liði í fjórum ráðuneytum ynnu að gerð „viðbragðsáætlunar” vegna „vanda” íslensku flugfélaganna.

Síðan ekki söguna meir.

Illu heilli hefur, okkur vitandi, enginn fjölmiðill grafið dýpra í þetta mál þó mánuður sé liðinn síðan fyrstu fregnir birtust og nokkrir mánuðir síðan að stjórnvöld settu mannskap í málið.

Við almúginn því engu nær um hvers vegna tugir starfsmanna fjögurra ráðuneyta sitja sveittir yfir leiðum til að bjarga flugfélögunum Icelandair og Wow Air, þegar og ef allt fer á versta veg.

Við engu nær um hvers vegna ríkið er að spandera tíma og feitum fjármunum skattgreiðenda til að koma einkafyrirtækjum til bjargar. Einkafyrirtækjum í eigu milljarðamæringa. Einkafyrirtækjum sem gekk stórkostlega þangað til alvarleg samkeppni kom til sögunnar. Einkafyrirtækjum sem eru rekin af landsins „hæfasta” fólki. Einkafyrirtækjum sem hafa upplifað mesta blómaskeið í ferðamennsku hérlendis í sjö ár í röð án þess að búa sig undir þrengri aðstæður.

Við engu nær um hvað felst í hugsanlegan „ríkisviðbrögðum”  heldur. Ætlar ríkið að leggja flugfélögunum til fjármuni almennings ef í harðbakka slær? Ætlar ríkið að meina erlendum flugfélögum að fljúga hingað til að skerða samkeppnina? Er hugsanlegt að ríkið yfirtaki flugfélag eða flugfélög fyrir almannafé til að bjarga þeim fyrir horn?

Kannski það. Enginn veit því enginn blaðamaður hefur forvitnast.

Sé svo vakna fleiri spurningar. Ætli Jón og Gunna verði ánægð með að ríkið veiti tveimur einkaflugfélögum liðsinni með drjúgum framlögum meðan margt eldra fólk fær ekki mat að borða? Ætli Jón og Gunna verði ánægð með að flugfélög fái feitan seðil meðan heimilislausu fólki sem stikar göturnar fjölgar hérlendis eins og mýi á nýrri mykjuskán. Verða Jón og Gunna sátt með milljarða til Icelandair og Wow Air þegar ljósmæður fengu varla tíma dagsins í ráðuneytunum fyrir skömmu síðan? Ætli Jón og Gunna stökkvi hæð sína í loft upp þegar einkaflugfélög fá forgang hjá ríkinu meðan vegir í Kongó fá betri einkunn en vegir hérlendis?

Spyr fólk sem ekki veit…