Hegðun fólks gerist skrýtnari og skrýtnari með hverju árinu. Mökkölvuðum breskum ungmennum finnst barasta algjört sport að stökkva milli svala á sjöttu hæð á hótelum á Spáni. Og svo virðist sem sumum Bandaríkjamönnum finnist súper-eðlilegt að draga fram sprellann á flugi og pissa á næsta mann.

Að pissa hinn eðlilegasti hlutur. En ekki á næsta mann í flugvél.
Ótrúlega eðlileg hegðun sem kemst í heimsfréttirnar þessa síðustu og verstu. Fjölmiðlar í Japan greina allir sem einn frá því að ungur Bandaríkjamaður gisti nú fangageymslur í landinu eftir að hafa staðið upp í flugi frá Bandaríkjunum til Japans, dregið fram sprellann og farið að pissa á næsta mann sísona.
Smekklegt ekki satt. Þú í rólegheitum að horfa á bíó eða borða upphitan kjúkling í rólegheitum í rellunni þegar að þér vindur sér maður og pissar á þig eins og enginn sé morgundagurinn.
Fram kemur í japönskum miðlum að Bandaríkjamaðurinn segist ekki muna neitt af því sem gerðist og kemur ekki á óvart. Hann þambaði kampavín allan túrinn…
Döööhh.







