E kkert lítið sem hin yfirborðskennda Katrín Jakobsdóttir og hennar stjórn hafa pungað undir ferðaþjónustuna á klakanum þrátt fyrir súpervafasama aðila í bransanum um allar trissur. Eða hver vissi að við heimtum samsvarandi skatta og gjöld af ferðafólki og Danir sem eiga ekki eina einustu náttúruperlu….

Ríkistekjur af hverjum ferðamanni til landsins er djók.

Hmmm!

Jamms, þú last þetta rétt. Ferðafólk sem heimsækir Íslandið góða, þú veist þetta land sem er súpereinstakt í veröldinni, þarf aðeins að greiða sömu skatta og gjöld fyrir og þarf að gera þegar þú heimsækir steinflata Danmörku með nákvæmlega núll prósent náttúrufegurð. Þrjú þúsund og fjögur hundruð krónur fram og aftur. Það er heila upphæðin sem ríkið tekur fyrir af hverjum einstaklingi fyrir að lenda hér og fljúga út. Sautján hundruð hundruð krónur í ríkiskassann fyrir að heimsækja þetta einstaka land ef einhver nennir ekki heim aftur!!!

Vissulega er ríkið feitt og breitt í álagningu á ýmsu því sem ferðafólk brúkar hérlendis alveg eins og með okkur hin sem hér búum. En það vekur töluverða furðu ritstjórnar að það þessi nýjasta „stoð” í hagkerfinu tekur rúmlega 40% lægra gjald af hverjum ferðamanni en Bretar og Þjóðverjar gera. Eru þó milljónir fleiri að heimsækja bæði Bretland og Þýskaland á eðlilegum ársgrundvelli. Skattar og gjöld á hvern ferðamann sem heimsækir þessi tvö lönd nema tæplega 4.700 krónum per haus. En fagra, einstaka Ísland vill bara smotterí.

Íslensk stjórnvöld, og líklega gráðugir íslenskir ferðaþjónustuaðilar, hafa líklega ekki enn fattað að landið okkar er súpereinstakt í veröldinni. Öll lönd vissulega einstök per se en hvar annars staðar í heiminum finnast brennheitir hverir við hlið stærstu jökla heims? Hvar annars staðar finnast viðamiklar óbyggðar víðáttur með nákvæmlega engum hættulegum dýrum eða skordýrum? Hvar annars staðar kann hver einasti frumbyggi erlent tungumál og margir fleiri en eitt? Hvað annars staðar finnst íslenski refurinn og íslenski hesturinn og hvar annars staðar eru moskítóflugur ekki eilíft vandamál? Hvar annars staðar í heiminum er loft og vatnsmengun minni en hérlendis?

Makalaust alveg. Best að selja slík einstök og tímabundin verðmæti á algjörum útsöluprís…